Ársreikningur 2021

Efnahagur og sjóðstreymi

Heildareignir og veltufjárhlutfall

Heildareignir samstæðunnar námu 36.501 í árslok og hækkuðu um 18,3% á milli ára. Hækkunin á milli ára er að miklu leyti til komin vegna hækkunar leigueigna um 2.822 m.kr. vegna langtímaleigusamnings sem var gerður samhliða sölu óvirka innviða og hækkunar á handbæru fé um 3.383 m.kr. vegna innviðasölu og hækkun á viðskiptakröfu vegna virðisaukaskatts af innviðasölu en sú krafa endurspeglast einnig í hærri skammtímaskuldum.
Veltufjárhlutfall var 1,58 í lok árs 2021 samanborið við 1,10 í lok árs 2020. Í byrjun árs 2022 samþykkti stjórn kaup á eigin bréfum fyrir 1.390 m.kr. Í framhaldi var virkjuð endurkaupaáætlun en heildarkaupverð verður ekki hærra en 600 m.kr. Þegar leiðrétt er fyrir þessum liðum er leiðrétt veltufjárhlutfall 1,31.

Loading...

Eigið fé og eiginfjárhlutfall

Í lok ársins 2021 var eigið fé 10.535 m. kr. og eiginfjárhlutfall var 28,9%. Útistandandi hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr. og stóð óbreytt frá árslokum 2020. Líkt og var fjallað um hér að framan var endurkaupaáætlun virkjuð í byrjun árs 2022, ef leiðrétt er fyrir kaupunum er leiðrétt eigið fé 8.545 m.kr og leiðrétt eiginfjárhlutfall 24,8%.

Loading...

Hreinar vaxtaberandi skuldir/EBITDA

Hreinar vaxtaberandi skuldir námi 14.073 m.kr í árslok 2021 og var hlutfall þeirra á móti EBITDA hagnaði leiðréttum fyrir áhrifum innviðasölu sl. 12 mánaða 2,5.

Loading...

Fjárfestingar

Rekstarfjárfestingar námu 1.214 m.kr. á árinu 2021 og hækkuðu um 16% á milli ára sem skýrist af mestu af hærri fjárfestingum í innri kerfum. Hlutfall fjárfestinga af tekjum var 5,6%.

Loading...

Frjálst fjárflæði

Frjálst fjárflæði félagsins á árinu 2021 var 9.853 m.kr. en á fyrra ári nam það 3.210 m.kr.

Loading...

Við notum vefkökur til að bæta upplifun þína á síðunni. Með því að halda áfram að vafra um síðuna samþykkir þú skilmála okkar um notkun á vefkökum, að öðrum kosti getur þú kynnt þér hvernig má stýra notkun þeirra.